Stymmi spáir í spilin: 6. umferð Olís deild karla

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 6.umferð fari í Olís deild karla.

Afturelding – HK (Fimmtudagur 18:15) / Sigurvegari: Afturelding

Ég hreinlega man ekki hvenær HK náði í stig gegn Aftureldingu síðast. Árin eru allavegna orðin talsvert mörg og bara í síðustu viku slógu Afturelding þá út úr Powerade bikarnum. Það mun ekkert breytast í kvöld þar sem Afturelding fer með þægilegan sigur af hólmi.

Haukar - Selfoss (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Haukar

Haukar eru með fullt hús á toppi deildarinnar og hafa verið að vinna þessa skyldusigra nokkuð örugglega. Selfoss er ennþá í leit af fyrsta sigrinum en hann kemur því miður ekki í kvöld þar sem Haukar munur vinna þenann leik talsvert örugglega.   

ÍBV - Þór (Föstudagur 18:00) / Sigurvegari: Þór

Þórsarar að fara í svokallaðan tvíhöfða í Vestmannaeyjum þar sem þeir mæta ÍBV á föstudegi og ÍBV 2 í Powerade bikarnum á laugardaginn. Ég ætla spá því að þetta verði alslemma hjá Þórsurum í Vestmannaeyjum þessa helgina og þeir fari með tvo sigra í farteskinu norður aftur.   

Stjarnan - KA (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: KA

Bæði lið duttu úr bikarkeppninni í síðustu viku. Bjarni Ófeigur verði sennilega ekki með KA mönnum í kvöld vegna meiðsla en ég held að sterkur varnarleikur, Ágúst Elí fyrir aftan og Dagur Gauta í hraðaupphlaupum munu leggja grunninn að sigri KA í Garðabænum. Stjarnan hefur verið að sína ágætar frammistöður á þessu tímabili en það mun ekki duga gegn KA á morgun.

Víkingur - Valur (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Valur

Valsmenn eru í mikilli törn þessa dagana svo Víkingar eru eflaust ánægðir að fá þá á þessu stigi tímabilsins. Víkingar unnu frábæran sigur á KA í bikarkeppninni í síðustu viku. Valsmenn halda áfram að gera það gott í Evrópu og mun sigur þeirra á Tatabanja í vikunni gefa þeim aukna orku fyrir þennan leik og þeir vinna að lokum eftir mikla baráttu.

Fram – FH (Laugardagur 18:30) / Sigurvegari: FH

Fram hafa verið í mikilli brekku undanfarið og þarf Einar Jónsson að finna lausnir á vandamálum þeirra. FH fóru illa með þá í bikarkeppninni fyrir viku síðan en voru að koma úr erfiðu ferðalagi til Madeira þar sem þeir töpuðu illa í Evrópukeppninni. Ef Fram ætla að finna „mojo-ið“ sitt aftur þá er þetta leikurinn til þess að snúa taflinu við. FH hafa verið að spila virkilega vel heima fyrir og munu halda því áfram á föstudaginn og vinna Fram en munu þurfa hafa meira fyrir því en í bikarkeppninni.

1.umferð (6 réttir)
2. umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top