Athygli vakti að Orri Freyr Þorkelsson var ekki í leikmannahópi Sporting þegar liðið mætti Avanca í portúgölsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Orri Freyr hefur verið að glíma við meiðsli í öxl að undanförnu en segir þau ekki alvarleg og reiknar með að vera klár í slaginn þegar Sporting mætir þýska stórliðinu Magdeburg í Meistaradeild Evrópu á morgun. Orri Freyr hefur verið í stóru hlutverki hjá Sporting á tímabilinu og því vakti fjarvera hans athygli um helgina. Í samtali við Handkastið staðfesti landsliðsmaðurinn að hann hefði verið að glíma við verki í öxl um nokkurt skeið og að ákveðið hefði verið að hvíla hann í einum leik til að gefa honum tækifæri til að jafna sig. „Ég er búinn að vera með verk í öxlinni í svolítinn tíma og var látinn hvíla einn leik til að jafna mig aðeins á því. Ekkert alvarlegt og ég verð klár í næsta leik,“ sagði Orri Freyr í samtali við Handkastið. Næsti leikur Sporting er sannkallaður stórleikur gegn þýska meistaraliðinu Magdeburg í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Þar eru mikilvæg stig í húfi en bæði lið eru með sex stig í 2. riðli keppninnar, rétt eins og spænska stórliðið Barcelona. Það er því mikið undir hjá portúgalska liðinu sem freistar þess að bæta stöðu sína í riðlinum. Sporting mun þar vonast eftir því að geta teflt fram sínum sterkasta mannskap og miðað við orð Orra Freys sjálfs ætti hann að vera klár í slaginn þrátt fyrir axlarmeiðslin. Fjarvera hans um síðustu helgi virðist því fyrst og fremst hafa verið varúðarráðstöfun fyrir mikilvæga leikinn gegn Magdeburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.