Tjörvi Týr Gíslason snýr aftur í leikmannahóp Vals þegar liðið mætir Mors-Thy í Evrópudeildinni í Danmörku í kvöld. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, staðfesti að Tjörvi væri kominn til Danmerkur og myndi leika með liðinu í kvöld. Tjörvi missti af eins marks tapi Vals gegn Tatabánya í Ungverjalandi í síðustu viku. Á meðan liðsfélagar hans léku þar var hann á fæðingardeildinni að taka á móti sínu fyrsta barni. Valsmenn unnu fyrri leikinn gegn Mors-Thy með ellefu marka mun á Hlíðarenda. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.45 og með sigri tryggir Valur sér sæti í næstu umferð Evrópudeildarinnar. Valur vann fyrri leik liðanna með ellefu mörkum í Valsheimilinu fyrr á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.