Valur mætir danska liðinu Mors-Thy á útivelli í Evrópudeild karla í kvöld. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, býst við erfiðum leik gegn sterkum heimamönnum en segir sína menn vel undirbúna og staðráðna í að sækja tvö stig til Danmerkur. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og er sýndur í beinni á Livey. Valsmenn héldu til Danmerkur á sunnudaginn og hafa þegar fengið tækifæri til að æfa í keppnishöllinni. Ágúst segir að vel fari um liðið og að undirbúningurinn hafi gengið samkvæmt áætlun. „Við komum til Danmerkur á sunnudaginn og æfðum í keppnishöllinni og það fer vel um okkur hér,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið. Ágúst á von á öflugum heimamönnum en Mors-Thy hefur verið sterkt á heimavelli sínum. Þá hefur danska liðið fengið mikilvægan liðsstyrk fyrir viðureignina gegn Val. „Við undirbúum okkur fyrir mjög erfiðan leik. Þeir eru góðir á sínum heimavelli og það er yfirleitt vel mætt. Þeir hafa verið að fá inn sinn besta mann, örvhenta skyttu sem hefur verið meiddur og spilaði sinn fyrsta leik um helgina. Við búumst við þeim mjög öflugum.“ Valsmenn þekkja vel til danska liðsins eftir fyrri viðureign liðanna í riðlakeppninni. Ágúst segir að sá leikur hafi verið besti leikur Vals í Evrópudeildinni til þessa og leggur áherslu á að liðið þurfi að ná sambærilegri frammistöðu á morgun. „Þeir eru farnir að spila mikið sjö á móti sex. Við erum að reyna að undirbúa og skipuleggja það. Annars snýst þetta um að við náum alvöru frammistöðu líkt og við gerðum gegn þeim á okkar heimavelli. Það var okkar besti leikur í þessari riðlakeppni.“ Ágúst segir að æfingar undanfarna daga hafi gengið vel og að leikmenn séu spenntir fyrir verkefninu sem bíður þeirra í Danmörku. „Við höfum æft vel og eigum að vera vel undirbúnir og þurfum að ná góðri frammistöðu til að ná góðum úrslitum. Það er að sjálfsögðu markmiðið hjá okkur öllum. Strákarnir eru ferskir og það er mikil tilhlökkun fyrir leiknum. Við ætlum að gefa allt í þetta og vonandi dugar það til að fá tvö stig.“ Stiven Tobar Valencia lék sinn fyrsta leik með Val í síðustu viku en er kominn aftur heim í Val eftir þrjú ár hjá Benfica í Portúgal. Ágúst er ánægður með að hafa endurheimt Stiven en segir mikilvægt að gefa honum tíma til að ná sér að fullu eftir erfið meiðsli. „Það var jákvætt að fá Stiven og bæta við okkur einum leikmanni í hópinn. Auðvitað gefur það okkur meiri breidd, varnarlega. Hann hefur verið að leysa það aðeins með okkur. Hann þarf sinn tíma, hann er að koma til baka eftir erfið meiðsli og hann kemur hægt og bítandi inn í þetta. Það er gott fyrir hópinn að fá jafn öflugan leikmann og Stiven,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.