Dana Björg Guðmundsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu sem fram undan er. Vinstri hornamaðurinn greindi frá því á Instagram í gær að ökklameiðslin sem hún varð fyrir í mars hefðu haldið henni frá æfingum og leikjum með norska úrvalsdeildarliðinu Larvik síðustu vikurnar. Dana Björg hefur verið fyrsti kostur í vinstra horni íslenska landsliðsins undanfarin ár. Hún gekk í raðir Larvik frá Volda í sumar en meiðslin hafa sett strik í reikninginn. Íslenska kvennalandsliðið undirbýr sig nú fyrir Evrópumótinu sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku. Íslenska liðið hittist í Malmö í gær þar sem liðið leikur tvo vináttulandsleiki við Svía á fimmtudag og laugardag áður en liðið ferðast til Rúmeníu þar sem liðið leikur þrjá leiki í riðlakeppni mótsins. Færsla Dönu í heild sinni er hér að neðan. Það verður ekkert EM í þetta skiptið Eftir meiðslin í ökklanum í mars hefur því miður ekkert mikið gengið minn veg, og ég hef ekki getað tekið þátt í æfingum og leikjum með Larvík síðustu vikurnar. Þetta er sárt, og ég var búin að hlakka svo mikið til að taka þátt aftur í EM með stelpunum, enn svona er lífið stundum Ég geri allt sem þarf og vinn í að komast aftur á völlin og hlakka virkilega til að styðja stelpurnar mínar eins og restin af Íslandi

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.