Valur fékk tæpar fimm milljónir fyrir sigrana í Evrópubikarnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elín Rósa í úrslitaleiknum gegn Porrino. ((Baldur Þorgilsson)

Kvennalið Vals er ríkjandi Evrópubikarmeistari eftir sigur á spænska liðinu, BM Porrino í einvígi sem fram fór í maí. Valur vann seinni leikinn á heimavelli í N1-höllinni 25:24 fyrir framan troðfulla stúku af stuðningsmönnum.

Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt kvennalið vinnur Evrópubikarkeppni árið áður hafði karlalið Vals unnu sömu keppni eftir sigur á gríska liðinu, Olympiacos í vítakastkeppni í Grikklandi.

Í grein þýsku handboltavefsíðunnar, Handball-World kemur fram að Valur hafi fengið 10.000 evrur í sjónvarps- og auglýsingatekjur í Evrópubikarnum en spænska liðið fékk sömu upphæð. Til viðmiðunar fengu karlalið Alkaloid og AEK Aþenu 25.000 evrur fyrir sömu tekjur en þau lið fóru alla leið í úrslit í Evrópubikar karla.

Gera má því ráð fyrir að karlalið Vals hafi fengið slíka upphæð er liðið fór alla leið í sömu keppni, árið áður. 25.000 evrur eru rúmlega 3,5 milljónir.

Samanlegt er því hægt að gefa sér að fyrir sigrana í Evrópubikar karla og kvenna síðustu tvö ár hafi Valur fengið tæpar fimm milljónir fyrir sigrana í Evrópubikarnum úr sjónvarps- og auglýsingatekjum

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top