Afturelding hefur samið við Dana. ((Raggi Óla)
Oscar Lykke, ungur Dani sem lék með TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð er á leið í Aftureldingu samkvæmt heimildum Handkastsins. Vonir standa til þess að Afturelding geti kynnt hann sem nýjan leikmann félagsins á næstu dögum. Oscar Lykke á að fylla það skarð sem Blær Hinriksson skilur eftir sig en eins og Handkastið hefur fjallað um bendir allt til þess að Blær leiki erlendis á næsta tímabili. Oscar sem verður tvítugur í ágúst er sagður vera 195 cm á hæð á heimasíðu evrópska handknattleikssambandsins, EHF. Hann er uppalinn hjá danska félaginu, TIK Taastrup en gekk í raðir TMS Ringsted 17 ára að aldri. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Ringsted síðasta sumar og lék sitt fyrsta tímabil í dönsku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili. Þar fékk hann fá tækifæri en vonast eftir stóru og veigamiklu hlutverki í Aftureldingu.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.