Veszprem kemur til Íslands – Kveðjuleikur Arons
(MARIUS BECKER / dpa Picture-Alliance via AFP)

Aron Pálmarsson ((MARIUS BECKER / dpa Picture-Alliance via AFP)

Ungverska stórliðið, One Veszprem kemur til Íslands og tekur þátt í kveðjuleik Arons Pálmarssonar. Þetta staðfesti Einar Andri Einarsson, aðstoðarþjálfari FH og starfsmaður handknattleiksdeildar FH í samtali við Handkastið.

Fer leikurinn fram föstudagskvöldið 29.ágúst í Kaplakrika en miðasala á leikinn hefst á næstkomandi föstudag á Stubb.

FH-ingar gera ráð fyrir veglegri dagskrá í kringum leikinn en Aron mun leika fyrir bæði lið í leiknum en leikurinn verður hluti af undirbúningi beggja liða fyrir komandi tímabil.

Ungverskaliðið mun mæta með alla sína bestu leikmenn til Íslands og æfa í Kaplakrika í nokkra daga áður en leikurinn verður spilaður. Samkvæmt heimildum Handkastsins kemur Veszprém hingað til lands og æfa dagana 26. til 31. ágúst.

Aron lagði handboltaskóna á hilluna undir lok síðasta tímabils og lauk því ferlinum með ungverska liðinu en Aron lék með stærstu félögum Evrópu á sínum ferli.

Aron fór í atvinnumennsku aðeins 19 ára gamall er hann gekk til liðs við Kiel í Þýskalandi. Þar varð hann Þýskalandsmeistari fimm sinnum, bikarmeistari tvívegis og vann Meistaradeildina tvisvar með liðinu.

Hann lék síðar með Barcelona á árunum 2017-2021 þar sem hann var í stóru hlutverki meðan liðið vann allt sem hægt var að vinna í heimalandinu.

Þá lék Aron einnig með Álaborg í Danmörku og varð með liðinu danskur bikarmeistari. Aron snéri heim úr atvinnumennsku 2023 og vann Íslandsmeistaratitilinn með sínu uppeldisfélagi en snéri svo aftur í herbúðir Veszprém í Ungverjalandi fyrir áramót og vann ungverska meistaratitilinn með liðinu áður en skórnir fóru á hilluna.

Aron á að baki glæstan landsliðsferil, hann lék 182 leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 695 mörk.

Aron vann bronsverðlaun með ís­lenska landsliðinu á EM 2010 og þá var hann kjörinn íþróttamaður ársins á Íslandi 2012.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top