Jökull Blöndal (Egill Bjarni Friðjónsson)
Jökull Blöndal Björnsson hefur skotist upp á stjörnuhimininn með liði ÍR í vetur. Þessi unga stórskytta ætlar að sýna á sér bakhliðina í dag: Fullt nafn: Jökull Blöndal Björnsson Eldri bakhliðar: Bakhliðin: Skarphéðinn Ívar Einarsson Bakhliðin: Sigurður Dan Óskarsson Bakhliðin: Breki Hrafn Árnason Bakhliðin: Bakhliðin: Lilja Ágústsdóttir Bakhliðin: Ísak Logi Einarsson Bakhliðin: Garðar Ingi Sindrason Bakhliðin: Bakhliðin: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Bakhliðin: Dagur Árni Heimisson Bakhliðin: Baldur Fritz Bjarnason Bakhliðin: Elín Rósa Magnúsdóttir
Gælunafn: Jölli, blöpoop, Blö…
Aldur: 18
Hjúskaparstaða: Einhleypur
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2023, ég man ekki hver andstæðingurinn var.
Uppáhalds drykkur: ískalt epla bon aqua
Uppáhalds matsölustaður: Domino´s
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: True Detective S1
Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir
Uppáhalds hlaðvarp: Dr. football
Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok
Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Þorsteinn Leó
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Hef ekki hugmynd
Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: Sirka 4-5 tíma (alltof mikið)
Fyndnasti Íslendingurinn: Hjörvar Hafliða
Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: Ég er með 39 stiga hita og kvef..
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Herði, Ísafjörður er bara aðeins of langt í burtu
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Aron Pálmason
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Bjarni Fritzson
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Kári Kristjáns, hann er reynslumikill og kann öll trikkin í bókinni
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Mikkel Hansen og Aron Pálmason
Helsta afrek á ferlinum: Annað sæti á Sparkassen cup og halda okkur upp í Olís í fyrra
Mestu vonbrigðin: Að ná ekki fyrsta sæti í Sparkassen cup
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Hafþór Vignisson, hann hefur góðan leikskilning og væri geggjað að fá hann aftur í ÍR.
Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Baldur Fritz og Jóhanna Margrét
Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Nikola Karabatic
Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Bæta við skotklukku, það væri áhugavert
Þín skoðun á 7 á 6: Ég hef ekkert á móti því
Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Fyrsta æfingin með ÍR þegar ég var um 9 ára gamall
Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Puma Nitro Sqd
Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Ég tæki með mér Patrek Smára, til að veiða til matar. Ísar Tuma, hann gæti byggt eitthvað úr engu og Ólaf Rafn, hann gæti sagt okkur sögur og eldað það sem Patti veiðir.
Hvaða lag kemur þér í gírinn: Enginn Mórall með Aron Can
Rútína á leikdegi: Borða vel, horfa á klippur af andstæðingnum og hlusta á góða tónlist
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Myndi senda Bernard því hann mætir með stemninguna og kynþokkann
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Þór er fyrsta handboltaliðið sem ég æfði með
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hvað Baldur Fritz er hrikalega lélegur í sókn í fótbolta
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er. Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Hjörvar Hafliða hvernig hann fer að því að vera svona fyndinn
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.