Antonio Serradilla - Mathias Gidsel (Ronny HARTMANN / AFP)
Spænski landsliðsmaðurinn, Antonio Serradilla sem gekk í sumar í raðir Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni frá Magdeburg er nú orðaður við endurkomu til Magdeburgar. Það er rthandball á Instagram sem segir frá. Þar er fullyrt að samkvæmt heimildum rthandball hefur Antonio Serradilla nú þegar skrifað undir þriggja ára samning við Magdeburg sem tekur gildi næsta sumar. Serradilla var í stóru hlutverki í varnarleik Magdeburgar á síðustu leiktíð er liðið varð Evrópumeistarar eftir sigur á Fuchse Berlín í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Serradilla á að baki fjórtán landsleiki fyrir Spán en hans fyrsti landsleikurinn fór fram í júní 2019. Spánverjinn er fæddur árið 1999 og lék með Elverum í Noregi tímabilið 2023-2024.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.