Silfurlið Powerade-bikars karla ÍR sem situr á botni Olís-deildarinnar með sjö stig þegar þrjár umferðir eru eftir urðu fyrir mikilli blóðtöku í undanúrslitaleik sínum gegn KA á fimmtudaginn þegar þeirra lang markahæsti leikmaður Baldur Fritz Bjarnason fór af velli í upphafi leiks. Bjarni Fritzson þjálfari og faðir Baldurs telur ólíklegt að Baldur spili meira með ÍR liðinu það sem eftir er af tímabilinu. ÍR fer til Vestmannaeyja í 20. umferð Olís-deildarinnar á fimmtudaginn. Liðið mætir síðan Stjörnunni næstkomandi mánudag áður en lokaumferðin verður leikin fimmtudaginn 12.mars. Það er því stutt eftir af Olís-deildinni en ÍR þarf í það minnsta þrjú stig úr leikjunum þremur og liðið þarf að treysta á að Stjarnan fái ekki fleiri stig til að koma sér upp úr botnsætinu og senda Stjörnuna í botnsætið í staðin. ,,Þetta er auðvitað blóðtaka fyrir okkur. Hann hefur stjórnað spilinu hjá okkur í allan vetur og það skýrir höktið á sóknarleiknum í fyrri hálfleiknum hjá okkur. Varðandi endurkomu hjá honum þá er það ólíklegt. Hann er að fara í myndatöku á mánudaginn (í dag). Við höfum fengið góða greiningu og það er ólíklegt að hann spili eitthvað meira," sagði Bjarni Fritzson þjálfari ÍR í samtali við Handkastið eftir bikarúrslitaleikinn á laugardaginn sem ÍR tapaði með sjö mörkum 28-21. 20.umferðin í Olís-deild karla hefst á miðvikudagskvöldið þegar Þór tekur á móti bikarmeisturum Hauka.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.