Grótta gefur ekkert eftir í baráttunni um toppsætið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hannes Grimm ((Eyjólfur Garðarsson)

Í kvöld mættust Haukar 2 og Grótta á Ásvöllum í Grill 66 deild karla.

Leikurinn var kaflaskiptur. Í fyrri hálfleik var allt í járnum og lítill munur á milli liðanna. Voru Haukarnir þó meira yfir í fyrri hálfleik. Hálfleiksstaðan var 12-13 fyrir Gróttu.

Í seinni hálfleik tóku Gróttu menn öll völd á leiknum og sýndu styrk sinn. Eftir korter í seinni hálfleik var staðan orðin 17-23 fyrir Gróttu. Áfram héldu þeir á bensíngjöfinni og slökuðu engan veginn á. Fór það svo að lokum að Grótta sigraði með 11 mörkum. Urðu lokatölur 23-34. Ákaflega kaflaskiptur leikur.

Grótta er því áfram í harðri baráttu um toppsætið í deildinni.

Hjá Gróttu var Atli Steinn Arnarson með 7 mörk og Hannes Pétur Hauksson varði 16 skot.

Hjá Haukum 2 var Daníel Sigurgeirsson markahæstur með 6 mörk og Ari Dignus varði 18 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top