Gísli Örn framlengir við Gróttu
(Eyjólfur Garðarsson)

Gísli Örn Alfreðsson hefur skrifað undir nýjan samning við Handknattleiksdeild Gróttu og verður því í herbúðum Gróttu til ársins 2028.

Gísli Örn er fæddur 2006 og leikur yfirleitt í stöðu leikstjórnanda. Var hann máttarstólpi í öflugum 3. flokki í fyrra sem var bikarmeistari og lenti í 2.sæti Íslandsmótsins eftir mikla dramatík í úrslitaleik.

Í það heila hefur hann leikið 36 leiki fyrir meistaraflokk. Núna í vetur hefur Gísli skorað 28 mörk í 9 leikjum með liðinu. Missti hann út nokkra leiki vegna meiðsla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top