Í kvöld mættust Valur 2 og HBH á Hlíðarenda í Grill 66 deild karla.
Úr varð hörkuleikur. Kaflaskiptur leikur í fyrri hálfleik þar sem bæði lið skiptust á að hafa forskotið. Bæði lið gengu svo inn til búningsherbergja með stöðuna 18-18 í leikhléi.
Í seinni hálfleik byrjuðu Valsarar betur en eftir korter var staðan aftur orðin jöfn 27-27. Seinasta korterið var svo jafnt og spennandi en voru Valsarar alltaf einu skrefi á undan Eyjapeyjunum. Fór það svo að Valsarar sigruðu 35-33 í hörkuleik.
Hjá HBH var Egill Oddgeir Stefánsson markahæstur með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 8 boltum.
Hjá Val 2 var Matthías Ingi markahæstur með 11 mörk. Anton Máni varði 13 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.