Fjölnir (Eyjólfur Garðarsson)
Í kvöld mættust Hvíti Riddarinn og Fjölnir í Mosfellsbæ í Grill 66 deild karla.
Gestirnir úr Grafarvoginum voru betri fyrstu 20 mínútur leiksins. Þá tóku heimamenn aðeins við sér og náðu að komast yfir. Síðustu mínúturnar voru svo mjög jafnar og fóru liðin inn til búningsherbergja með stöðuna 14-14.
Í seinni hálfleik náðu Fjölnismenn fljótt forskotinu og eftir korter voru þeir komnir með 6 marka forskot 18-24. Þeir sigldu síðan þessum leik nokkuð örugglega heim og náði Hvíti Riddarinn aldrei að minnka muninn niður í meira en 4 mörk. Lokatölur leiksins 25-29.
Hjá Fjölni var Aðalsteinn Aðalsteinsson markahæstur með 8 mörk. Bergur Bjartmars varði 11 skot.
Hjá Hvíta Riddaranum var Leó Halldórsson markahæstur með 8 mörk. Sigurjón Bragi Atlason varði 10 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.