Þór - Selfoss (Egill Bjarni Friðjónsson)
Í kvöld mættust Selfoss 2 og Fram 2 á Selfossi í Grill 66 deild karla.
Selfyssingar voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn. Munaði þar mest um stórleik Ragnars Hilmarssonar sem raðaði inn mörkum. Eftir korter var staðan 9-7 fyrir þeim og þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 17-16.
Eftir 10 mínútur í seinni hálfleik náðu Framarar að jafna leikinn í 25-25. Selfyssingar náðu þá góðum spretti og komust 3 mörkum yfir. Framarar náðu að minnka muninn í 1 mark en nær komust þeir ekki. Lokatölur 37-33 fyrir heimamenn.
Hjá Fram 2 var Arnþór Sævarsson markahæstur með 13 mörk. Garpur Druzin varði 10 skot.
Hjá Selfossi var Ragnar Hilmarsson með 15 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 15 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.