Norðurlöndin: Skanderborg með sigur í fjarveru Donna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísak Gústafsson (Baldur Þorgilsson)

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í dönsku deildinni í kvöld en Skanderborg unnu góðan útisigur á Mors-Thy, 27-33 en gestirnir voru án Kristjáns Arnar Kristjánssonar sem er frá vegna meiðsla.

Í hinum leik kvöldsins gerðu Ringsted jafntefli við lið Bjerringbro-Silkeborg einnig á útivelli, lokatölur 27-27. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði tvö mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu á meðan Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og gaf þrjár stoðsendingar.

Skanderborg sitja í öðru sæti deildarinnar en þó langt á eftir efsta liðinu, Álaborg sem hafa unnið alla átján leiki sína. Ringsted eru í harðri fallbaráttu en þeir eru í tólfta sæti með 15 stig en þrjú lið fyrir ofan liðið eru með sama stigafjölda.

Úrslit kvöldsins:

Mors-Thy 27-33 Skanderborg

Bjerringbro-Silkeborg 27-27 Ringsted

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top