
Hinrik Hugi Heiðarsson - HBH (Eyjólfur Garðarsson)
Línumaðurinn, Hinrik Hugi Heiðarsson leikmaður ÍBV í Olís-deild karla og venslaliði ÍBV, HBH í Grill66-deildinni gæti verið frá keppni út tímabilið. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Hinrik Hugi meiddist í leik með HBH í Grill66-deildinni um síðustu helgi er liðið tapaði gegn Haukum 2 á heimavelli 25-33. Þar sneri hann sig á ökkla. ,,Þetta var óvanalegt þar sem ég varð voðalega lítið bólginn í kjölfarið. Ég var myndaður í kjölfarið og þar sást flísar og eitthvað vesen þarna sem hefur myndast af gömlum áverkum segja þeir," sagði Hinrik í samtali við Handkastið sem er nú að bíða eftir því að fara í aðgerð. Hann gerir ekki ráð fyrir því að spila meira með ÍBV né HBH á tímabilinu. Hinrik Hugi lék með Haukum á láni frá ÍBV á síðustu leiktíð og fékk stærra hlutverk á þessu tímabili með ÍBV eftir að samningi Kára Kristjáns Kristjánssonar var ekki endurnýjaður. ÍBV fer á Ásvelli á sunnudaginn og mætir þar Haukum í 17.umferð Olís-deildar karla klukkan 16:00 en 17.umferðin hefst á morgun með leik ÍR og HK. Umferðin lýkur síðan á sunnudaginn með fimm leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.