Juri Knorr (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
Dönsku meistarnir í Álaborg unnu sannfærandi tíu marka sigur á Sonderjyske í dönsku úrvalsdeildinni í gær og halda sigurgöngu sinni áfram í deildinni en liðið er með tólf stiga forskot á toppi deildarinnar. Skanderborg koma næstir og í 3.sætinu er GOG. Álaborg vann Sonderjyske 35-25 en léku án þýska landsliðsliðsmannsins, Juri Knorr sem er að glíma við smávægileg meiðsli á hné eftir langt og strangt Evrópumót en Juri Knorr var í eldlínunni með þýska landsliðinu á Evrópumótinu sem tapaði í úrslitum gegn Danmörku fyrir viku síðan. „Ég er að glíma við smávægileg meiðsli í hné. Ég er með einhverja verki. Þetta er ekki alvarlegt en við erum að skoða hvað þetta er og það var því gott og mikilvægt að fá hvíld í þessum leik. Þetta kom upp í milliriðlunum á Evrópumótinu. Það vonandi skýrist eftir helgi hvað þetta er en vonandi verð ég klár næstu helgi," sagði Knorr við TV 2 Sport. Álaborg mætir botnliði Grindsted á miðvikudaginn en um næstu helgi fer fram Final4 í danska bikarnum þar sem Álaborg mætir GOG í undanúrslitum. Sonderyskje og Ringsted mætast í hinum undanúrslitaleiknum. Það mætti því segja að undanúrslitaleikurinn á milli Álaborgar og GOG væri í raun og veru úrslitaleikurinn um það hvort liðið hampar bikarmeistaratitlinum í Danmörku á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.