Ómar Ingi í liði umferðarinnar – Ítalinn lokaði markinu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Ingi Magnússon (Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Ómar Ingi Magnússon er í liði 22. umferðar í þýsku úrvalsdeildinni en Ómar Ingi gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í 17 marka sigri Magdeburg gegn Minden 38-21. Liðsfélagi hans í Magdeburg, Magnus Saugstrup er einnig í liðinu en hann skoraði jafn mörg mörk og Ómar í leiknum, átta mörk talsins.

23.umferðin fer af stað á fimmtudaginn með tveimur leikjum en athyglisverðasti leikur umferðarinnar er án efa fallbaráttuslagur Leipzig og Bergischer en einungis tveimur stigum munar á liðunum en Leipzig og Wetzlar er á botni deildarinnar með átta stig en Bergischer tíu.

Daikin Handball gaf út lið umferðarinnar sem lítur svona út.

Domenico Ebner (Leipzig)
Tomas Mrkva fann sig enganveginn í markinu í þær 10 mínútur sem hann spilaði. Ítalinn, Domenico Ebner mætti hinsvegar inn og lokaði rammanum. Varði 16 skot og var með 47% markvörslu í jafntefli þegar neðstu lið deildarinnar mættust

Casper U. Mortensen (Hamburg)
Casper skoraði sex mörk úr sex skotum í tveggja marka sigri á Melsungen.

Miro Schluroff (Gummersbach)
Stórkostlegur í átta marka sigri gegn Eisenach. Schluroff skoraði tólf mörk og gaf eina stoðsendingu í leiknum.

Marian Michalczik (Hannover Burgdorf)
Þrátt fyrir eins marks tap gegn Stuttgart er Michalczik í liði umferðarinnar með þrjú mörk og átta stoðsendingar í leiknum.

Ómar Ingi Magnússon (Magdeburg)
Skoraði átta mörk í 38-21 sigri á Minden á heimavelli. Var með 80% skotnýtingu og gaf þrjár stoðsendingar.

Bence Imre (Kiel)
Skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í 24-28 sigri á Göppingen á útivelli.

Magnus Saugstrup (Magdeburg)
Nýtti öll átta skot sín í leiknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top