Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Arnór Þór Gunnarsson og drengirnir hans í Bergischer HC höfðu betur í botnslagnum gegn Leipzig. Lokatölur urðu 28-35 Bergischer HC í vil eftir að hafa leitt 14-16 í hálfleik. Lukas Becher var markahæstur í liði Bergischer HC með 7 mörk. Blær Hinriksson skoraði 4 mörk fyrir Leipzig í dag. Miden og Stuttgart gerðu 32-32 jafntefli í fyrsta leik dagsins. Kai Hafner, leikmaður Stuttgart, var langmarkahæstur í leiknum með 10 mörk en Alexander Weck var markahæstur fyrir Minden með 7 mörk. Stuttgart leiddu í hálfleik með þrem mörkum, 16-19. Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark þegar lið hans Göppingen vann Hannover Burgdorf á útivelli í dag, 22-28. Reners Uncins var markahæstur á vellinum í dag og skoraði 9 mörk fyrir Hannover en Elias Newel var markahæstur í sigurliði Göppingen með 8 mörk. Göppingen leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 11-15. Í lokaleik dagsins unnu Fusche Berlin öruggan sjö marka sigur á Rein Necker Löwen, 35-28. Tim Freihofer, leikmaður Fusche Berlin, var markahæstur á vellinum í dag með 9 mörk en Jannick Kohlbacher skoraði 8 mörk fyrir RN Löwen. Haukur Þrastarson var flottur í liðið RN Löwen og skoraði 6 mörk og gaf 11 stoðsendingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.