Upp­selt á alla leiki Ís­lands á HM 2026
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mikil eftirspurn er eftir miðum á heimsmeistaramót karla í handbolta sem fer fram í janúar, og eru nú þegar allir miðar á leiki Íslands uppseldir í almennri sölu. Rætt var við Jón Halldórsson formann HSÍ á Vísi í gærkvöldi.

Þetta kemur mörgum eflaust ekki á óvart, sérstaklega í ljósi þess hversu erfitt var fyrir Íslendinga að tryggja sér miða á úrslitahelgina á Evrópumótinu sem fram fór í Herning í Danmörku í lok janúar.

Samkvæmt formanni HSÍ hófst miðasalan á heimsmeistaramótið fyrir löngu og mikill fjöldi miða seldist áður en ljóst var hvaða lið myndu leika á ákveðnum stöðum. Ljóst var í síðustu viku að íslenska landsliðið myndi leika leiki sína í riðlakeppninni í Magdeburg en sú höll tekur einungis rúmlega 6000 manns í sæti.

„Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan við fengum að vita hvar við myndum spila. Við komum til með að spila riðilinn í Magdeburg, förum svo yfir til Hannover í milliriðla og þaðan til Köln, ef allt gengur vel," sagði Jón Halldórsson formaður HSÍ í viðtali við Vísi í gær.

,,Miðasala hófst fyrir mörgum mánuðum, og eins ótrúlegt og það er þá er búið að selja þúsundir af miðum. Þýska þjóðin virðist hafa keypt ótrúlega mikið magn af miðum án þess að vita hvaða lið eru að fara að spila í höllinni,“ sagði Jón Halldórsson. 

Þrátt fyrir að miðar séu uppseldir hefur HSÍ þó náð að tryggja sér hluta af miðafjölda. Íslenskir stuðningsmenn munu því engu að síður eiga möguleika á að fylgja liðinu til Þýskalands, þar sem sambandið hyggst skipuleggja hópferðir fyrir áhugasama. 

Það er hinsvegar ljóst að töluvert færri íslenskir stuðningsmenn verða á HM í Þýskalandi á næsta ári heldur en hefur verið undanfarin stórmót en til að mynda voru 3000 íslenskir stuðningsmenn í Kristianstad í Svíþjóð þar sem riðlakeppni Evrópumótsins fór fram.

Þá var einnig mikill fjöldi stuðningsmanna Íslands sem var í Zagreb í Króatíu fyrir ári síðan og í München fyrir tveimur árum síðan. Svo það er nokkuð ljóst að það verða margir stuðningsmenn Íslands sem ekki fá miða á leiki Íslands á heimsmeistaramótinu á næsta ári í mekka handboltans, Þýskalandi.

,,Það er ekkert rosalega mikið sko (af miðum). Við erum með tæplega 400 miða í fyrstu leikina en það er misjafnt miðamagnið eftir leikjum. Þetta er svona frá 400 og upp í 1300, 1400, 1500 miða sem við erum með á þessa leiki… Við erum komin með samtals eitthvað á bilinu 4500-5000 miða sem kosta okkur örugglega tæpar fjörutíu milljónir. Við erum að vinna dag og nótt við að finna þessar 40 milljónir svo við getum keypt miða og selt þá áfram," sagði Jón Halldórsson þegar hann var spurður út í miðamagnið sem HSÍ hefur tekið frá fyrir íslenska stuðningsmenn.

Stór hluti af þessu miðum mun síðan fara til fjölskyldna leikmanna, starfsfólks HSÍ og styrktaraðila sambandsins. Hversu margir miðar fara þá raunverulega í sölu?

„Það kemur í ljós,“ svaraði Jón.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top