Fyrsta umferðin í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla heldur áfram í kvöld þegar seinni tveir leikirnir í fyrstu umferðinni fara fram. Hitað var upp fyrir einvígin í nýjasta þætti Handkastsins. Á Ásvöllum tekur Haukar á móti Aftureldingu klukkan 19:00 en klukkan 19:30 tekur FH á móti Íslandsmeisturum Fram. Það einvígi telur Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Víkings vera jafnasta einvígið í 8-liða úrslitunum en hann var gestur í nýjasta þætti Handkastsins. ,,Fram var versta liðið til að fá úr neðri hópnum ég held að 2.sætið í deild hafi aldrei gefið jafn erfiðan andstæðing eins og FH er að fara í núna. Einar Jónsson þjálfari Fram er klókur og Fram kann að fara í úrslitaleiki, þeir sýndu það í fyrra að þeir kunna að vinna. Núna þurfa þeir að gera það án Reynis Þórs en ég held að þetta verði mest spennandi einvígið af öllum einvígjunum í 8-liða úrslitunum og ég treysti mér ekki til þess að segja fyrirfram hvernig þetta einvígi fer," sagði Aðalsteinn Eyjólfsson. ,,Við getum sagt það að það yrði hrikalega mikið áfall fyrir annað hvort þessara liða að detta út í 8-liða úrslitum," bætti Arnar Daði Arnarsson við og rökstuddi það að bæði Afturelding og HK væri að fara í sín einvígi á allt öðrum forsendum og þá væri KA í miklum meiðslavandræðum. ,,Fyrir FH eða Fram að detta út í 8-liða úrslitum yrði mikið áfall," bætti Arnar Daði við. Stymmi klippari benti á að ef FH myndi detta út í 8-liða úrslitum væri verið að ræna af handboltaaðdáendum í enn eitt skiptið möguleikanum að fá FH - Haukar í undanúrslitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.