


Haukar tóku á móti FH í í öðrum leik liðanna í undanúrslita einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta á Ásvöllum í kvöld. FH vann fyrsta leik liðanna í Kaplakrika og leiddi því einvígið 1-0. Eins og við mátti búast eftir leiki liðanna í vetur þá var mikið jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik. Haukar hótuðu því allan fyrri hálfleikinn að komast í þægilega forystu en FH svaraði alltaf um hæl og hélt leiknum jöfnum. Haukar náðu þó að fara inn í hálfleikinn með tveggja marka forskot, 13-11. Haukar héldu uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks og náðu að komast fjórum mörkum yfir, 17-13. Eins og markaskorið gaf til kynna var hart barist og varnarleikur beggja liða virkilega góður. Jón Þórarinn markvörðu FH virtist finna sitt fyrra form í síðari hálfleik og byrjaði að reynast Haukum erfiður og náðu FH-ingar að minnka muninn í eitt mark. Kollegi hans í markinu hjá Haukum, Aron Rafn Eðvarðsson, var einnig frábær í marki Hauka í kvöld og varði hvað eftir annað frábærlega og hjálpaði Haukum að halda FH í hæfilegri fjarlægð. FH-ingar gerðu hvað þeir gátu til að reyna að minnka muninn í lokin en Aron Rafn var á öðru máli og varði hvert skotið á fætur öðru. Það fór þannig að Haukar unnu leikinn með fimm mörkum, 27-22. Aron Rafn Eðvarðsson var frábær í marki Hauka eins og áður sagði og varði 19 skot þar af 4 víti í kvöld og lagði grunninn af þessum fimm marka sigri Hauka. Markahæstur í liði heimamanna voru Freyr Aronsson og Össur Haraldsson með 7 mörk hvor en hjá FH var Garðar Ingi Sindrason markahæstur með 6 mörk. Staðan í einvíginu er því orðin 1-1. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.