Goðsögn kveður á sunnudaginn
FEDERICO GAMBARINI / AFP

Markvörðurinn, Katrine Lunde kveður norska kvennalandsliðið næstkomandi sunnudag þegar hún verður heiðruð á sínum gamla heimavelli í Kristiansand en á sama tíma leikur hún sinn síðasta landsleik á ferlinum þegar norska landsliðið tekur á móti Slóvakíu.

,,Það verður ótrúlega gaman. Það er sérstakt að spila síðasta leikinn heima í Kristiansand, af nokkrum ástæðum. Þar byrjaði þetta allt saman," sagði Katrine Lunde í viðtali á heimasíðu norska handknattleikssambandsins.

Það sem hún skilur eftir sig er ótrúlegur landsliðsferil sem spannar 23 ár en Katrine Lunde er 46 ára gömul en hún átti afmæli 30.mars síðastliðinn.

Hún hefur unnið þrjú Ólympíugullverðlaun, þrjú gullverðlaun á HM og sjö gullverðlaun á EM með norska landsliðinu. Þar að auki hefur hún unnið Meistaradeildina sjö sinnum með þremur mismunandi félagsliðum.

Hún hefur unnið til fimm verðlauna á Ólympíuleikum, sjö verðlaun á HM og níu verðlaun á EM. Hennar fyrstu verðlaun á stórmóti með Noregi vann hún á EM 2002 í Danmörku þegar Noregur vann til silfurverðlauna en norska landsliðið vann í kjölfarið fjögur Evrópumót í röð.

,,Þetta er auðvitað mjög gaman, en það þýðir ekki mikið í sjálfu sér. Ég er mjög stoltur af því að hafa verið á toppnum í svona mörg ár, en það eru ekki bikararnir sem ég hef verið að sækjast eftir," sagði Lunde og bætir við að henni hafi alltaf fundist gaman að mæta á æfingar, bæta sig, þroskast og eiga góða tíma með liðsfélögum sínum. ,,Það er það sem hefur hvatt mig mest áfram."

Gert er ráð fyrir að fjölmennt verði á kveðjuleik Katrine Lunde í Kristiansand næstkomandi sunnudag.

,,Það er mjög gaman að fá athygli fyrir það sem maður hefur áorkað, það er alveg víst. Ég hugsa ekki mikið um það, en þetta verður mjög tilfinningaríkt," sagði Lunde.

,,Fjölskyldan hefur skipt mestu máli ef við lítum á ferilinn í heild sinni. Annars er ég þakklát fyrir allt það frábæra fólk sem ég hef kynnst á leiðinni. Flestir vinir mínir eru, eða hafa verið, góðir handboltamenn."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top