Þrjú íslensk mörk í sigri Melsungen
Sævar Jónasson

Tveir leikir fóru fram í 27.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Hannover-Burgdorf vann sannfærandi útisigur gegn Eisenach á meðan Íslendingalið MT Melsungen vann fjögurra marka sigur á heimavelli gegn Minden.

Stórleikur Morten Hempel Jensen sem skoraði ellefu mörk fyrir Minden dugði ekki til á útivelli gegn Melsungen sem vann leikinn 32-28. Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen og Reynir Þór Stefánsson skoraði tvö mörk.

Minden leiddi í hálfleik með einu marki 15-16 en þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var staðan jöfn 25-25. Þá kom 5-0 kafli hjá Melsungen sem breyttu stöðunni í 30-25 og eftir það voru úrslitin nánast ráðin.

Hannover Burgdorf byrjuðu leikinn gegn Eisenach af miklu krafti og komst strax í 4-0 og 9-4 en staðan var 15-11 Hannover Burgdorf í vil í hálfleik. Þeir slökuðu ekkert á í þeim seinni og unnu að lokum níu marka sigur 35-26.

Justus Fischer var markahæstur allra með sjö mörk og liðsfélagi hans, Leif Tissier kom næstur með sex mörk. Hjá Eisenach var Oskar Joelsson og Vincent Buchner markahæstir með fimm mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top