
Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórleik í marki Barcelona í gær í sigri liðsins. Barcelona mættu Guadalajara í spænsku úrvalsdeildinni og unnu þægilegan 14 marka sigur, 38-24. Viktor Gísli stóð í marki Barcelona og varði 17 skot eða 41% þeirra skota sem komu á hann. Barcelona eru löngu búnir að tryggja sér titilinn á Spáni en þeir hafa unnið alla leiki sína í deildinni í vetur. Viktor Gísli hefur þurft að verma varamannabekkinn í stórleikjum Barcelona í vetur þar sem Emil Nilsen hefur staðið í markinu en hann gengur til liðs við Veszprem í sumar svo það verður spennandi að sjá hvort tækifærum Viktors Gísla fjölgi ekki á næsta ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.