Þóra María framlengir við Gróttu

Þóra María Sigurjónsdóttir hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028.

Þóra hefur leikið lykilhlutverk fyrir Gróttuliðið undanfarin ár. Hún skoraði 66 mörk fyrir Gróttu í vetur auk þess að láta vel til sín taka í vörninni.

„Við í þjálfarateyminu eru virkilega ánægðir með að Þóra skuli framlengja við Gróttu en hún er gífurlega mikilvægur leikmaður fyrir liðið. Hún er með mikinn baráttuvilja og góð á báðum endum vallarins. Auk þess er hún mikil fyrirmynd innan sem utan vallar“, sagði Júlíus Þórir Stefánsson í tilkynningu frá Gróttu í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top