Telur Veszprém geta komist langt í Meistaradeildinni í ár
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Danski línumaðurinn Lukas Jørgensen er sannfærður um að Veszprém hafi burði til að stíga næsta skref í Meistaradeild Evrópu á komandi tímabili.

Jørgensen gekk í sumar til liðs við ungverska stórliðið frá Flensburg-Handewitt í sumar. Hann er hinsvegar meiddur og verður frá keppni í upphafi tímabils.

Gengi Veszprém í Meistaradeild Evrópu hafa ollið vonbrigðum en liðið hefur ekki komist í Final 4 helgina í Köln síðan árið 2022 en þá endaði liðið í 4.sæti keppninnar.

„Þetta hefur verið mjög góð byrjun. Leikmennirnir og allt starfsfólkið hjá félaginu hafa tekið mjög vel á móti mér og hjálpað bæði mér og kærustunni minni að koma okkur fyrir í Veszprém,“ sagði Jørgensen í samtali við Nemzeti Sport.

Kröfurnar eru miklar í Veszprém. Félagið ætlar sér að vinna titla innanlands og gera atlögu að toppsætum í Meistaradeildinni.

„Mér finnst alltaf auðvelt að tala um markmiðin hjá félagi sem þessu, því þau eru þau sömu á hverju ári. Veszprém er að mínu mati stærsta félagið í Ungverjalandi og það þurfum við að sýna aftur í ár.“

Jørgensen telur að Veszprém geti einnig látið verulega að sér kveða í Meistaradeildinni.

„Það eru mörg góð lið í Meistaradeildinni, en ég hef virkilega á tilfinningunni að þetta félag og þetta lið geti tekið næsta skref á þessu tímabili. Það er löng leið í að komast í átta liða úrslitin og enn lengra eftir það, þannig að fyrst og fremst þurfum við að leggja hart að okkur. En mér finnst við hafa leikmennina til þess.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top