Danska úrvalsdeildin fær nýtt nafn – Veðmálafyrirtæki tekur við
Overlund & shotbyfriis

Danska karla úrvalsdeildin hefur fengið nýtt nafn eftir að þriggja ára samstarfssamningur var undirritaður við veðmálafyrirtækið Betoro.

Deildin mun héðan í frá bera nafnið Betoro Herreligaen en nafnbreytingin tekur gildi þegar í stað.

Samningurinn er gerður á milli Betoro, Tophåndbold og samtaka dönsku deildarfélaganna og gildir til næstu þriggja ára. Danskur karlahandbolti hefur notið mikillar velgengni undanfarin ár, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, og hefur það aukið áhuga fyrirtækja á að tengjast íþróttinni.

Thomas Christensen, framkvæmdastjóri Tophåndbold, segir samninginn mikilvæga viðurkenningu fyrir dönsku félögin og það starf sem þar fer fram. Hann leggur jafnframt áherslu á að þriggja ára samningur skapi mikilvægan stöðugleika og gefi félögunum tækifæri til að halda áfram að þróa danskan handbolta.

Mikkel Skovby, markaðsstjóri Betoro, segir fyrirtækið spennt fyrir samstarfinu og að markmiðið sé meðal annars að færa stuðningsmenn nær dönskum handbolta, bæði í íþróttahöllunum og á netinu.

Nýja nafnið verður tekið upp strax á öllum miðlum og í keppnishöllum dönsku úrvalsdeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top