Tveir leikmenn Vals, þeir Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg, eru í 16 manna landsliðshópi Færeyja sem hefur verið valinn fyrir fyrstu tvo leikina í undankeppni Evrópumótsins. Landsliðsþjálfararnir Peter Bredsdorff-Larsen og Hjalti Mohr Jacobsen tilkynntu hópinn en Færeyingar hefja undankeppnina með heimaleik gegn Kósóvó 4. nóvember áður en liðið sækir Svartfjallaland heim fjórum dögum síðar, 8. nóvember. Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg hafa báðir leikið með Val síðustu ár og hafa verið hluti af liði félagsins í Olís-deild karla á yfirstandandi tímabili og í Evrópudeildinni. Í hópnum er að finna nokkra leikmenn sem leika með sterkum félagsliðum í Evrópu. Þar á meðal eru Elias Ellefsen á Skipagøtu, leikmaður THW Kiel, Óli Mittún hjá GOG, Vilhelm Poulsen hjá Hannover-Burgdorf og Hákun West av Teigum hjá Füchse Berlin. Landsliðshópur Færeyja: Markverðir: Útileikmenn:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.