Egyptaland bestir í Afríku
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Egyptaland ((Photo by Aris MESSINIS / AFP)

Afríkumótinu í handbolta lauk í dag þegar Egyptaland tryggðu sér titillinn með sigri á Túnis.

Leikurinn var jafn fyrstu tuttugu mínúturnar en þá stigu Egyptar á bensíngjöfina og leiddu í hálfleik 17-10. Þeir juku muninn svo jafnt og þétt í síðari hálfleik og unnu að lokum þægilegan 13 marka sigur 37-24.

Þetta var í 10 skipti sem þessi lið mætast í úrslitum Afríkumótsins.

Mohamed Emad og Yahia Omar voru markahæstir í liði Egypta í dag með 6 mörk en hjá Túnis var Nafea Amed leikmaður Wetzlar markahæstur með 5 mörk.

Grænhöfðaeyjar tryggðu sér svo þriðja sætið í mótinu með 29-23 sigri á Alsír í morgun.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top