Fyrsta tap Óðins og Viktor Gísli kominn í bikarúrslit
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Gísli Hallgrímsson (Sævar Jónasson)

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen töpuðu sínum fyrsta leik í deildinni heima fyrir í Sviss í dag þegar liðið tapaði með þremur mörkum 34-31 á útivelli gegn Wacker Thun. 

Kadetten hafði unnið alla nítján leiki sína í deildinni fyrir leikinn í dag og tryggðu sér bikarmeistaratitil í Sviss milli jól og nýárs. Óðinn Þór skoraði einungis eitt mark úr einu skoti í leiknum. Wacker Thun er í 4.sæti deildarinnar, fimmtán stigum á eftir Kadetten Schaffhausen.

Í Norður-Makedóníu skoraði Úlfar Páll Monsi Þórðarson tvö mörk úr tveimur skotum í sigri Alkaloid á Tinex Prolet 37-29. Alkaloid er eftir sigurinn í 4.sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Varnar sem eiga leik til góða.

Á Spáni tryggði Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barcelona sér sæti í bikarúrslitum eftir sigur á Bidasoa Irun, 37-31 í undanúrslitum spænska bikarsins. Barcelona mætir Valladolid en þeir unnu La Rioja 27-22 fyrr í dag. Barcelona er á toppi spænsku deildarinnar með 30 stig en Valladolid eru í 6.sæti með 20 stig. Bikarúrslitaleikurinn fer fram á morgun klukkan 12:30 á íslenskum tíma.

Orri Freyr Þorkelsson var ekki í leikmannahópi Sporting sem hafði betur gegn Porto í 16-liða úrslitum portúgalska bikarsins í dag, 40-35 á útivelli. Þorsteinn Leó Gunnarsson var í leikmannahópi Porto en var ekki meðal markaskorara. 

Leik Benfica og Avanca var frestað í annað sinn á stuttum tíma vegna raka í íþróttahöllinni sem þótt óspilfær í annað sinn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top