
Þýska meistaraliðið SC Magdeburg virðist hafa fundið eftirmann landsliðsmannsins Elvars Arnar Jónssonar sem er sagður á leið til Rhein-Neckar Löwen. SPORT BILD greindi nýverið frá því að Elvar Örn Jónsson hefði náð samkomulagi við Rhein-Neckar Löwen, þar sem hann myndi hitta fyrir frænda sinn, Hauk Þrastarson. Nú herma nýjustu upplýsingar miðilsins að Magdeburg hafi þegar tryggt sér arftaka hans. Samkvæmt fréttinni mun franski landsliðsmaðurinn Thibaud Briet ganga til liðs við þýska meistaraliðið frá HBC Nantes. Félagaskiptin eiga samkvæmt SPORT BILD að vera frágengin. Briet er 26 ára gamall og afar hávaxinn leikmaður, alls 205 sentímetrar á hæð. Hann hefur leikið 44 landsleiki fyrir Frakkland og vann silfurverðlaun með liðinu á HM árið 2023. Briet vakti meðal annars mikla athygli í Meistaradeild Evrópu á yfirstandandi tímabili þegar hann skoraði 13 mörk gegn Füchse Berlin í 37:34 sigri Nantes í lokaleik riðlakeppninnar. Á tíma sínum hjá Nantes hefur hann meðal annars unnið franska bikarinn tvívegis. Frakkinn hefur einnig verið þekktur fyrir sterkan áhuga á umhverfismálum samhliða handboltanum. „Handbolti er ástríða mín, en náttúran og umhverfið eru mér líka kær,“ sagði Briet á síðasta ári. Samkvæmt frétt SPORT BILD hyggst hann halda þeirri hugsjón áfram í Þýskalandi, en fyrir hvert mark sem hann skorar fyrir Magdeburg á að planta tré.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.