Þrjú þýsk lið berjast í úrslitum Evrópudeildarinnar
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)

THW Kiel, SG Flensburg-Handewitt og MT Melsungen verða öll á meðal þátttakenda á úrslitahelgi Evrópudeildarinnar í handbolta sem fer fram í Hamborg um helgina en franska liðið Montpellier eru einnig í undanúrslitum. Auk Evróputitilsins gæti sigurvegarinn einnig tryggt sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Staðan í þýsku Bundesligunni miklu máli. Ef SC Magdeburg og Füchse Berlin tryggja sér sæti í Meistaradeildinni í gegnum fyrstu tvö sætin í deildinni gæti þriðja þýska sætið farið til sigurvegara Evrópudeildarinnar. Þess vegna er meira undir en aðeins titillinn sjálfur.

Simon Pytlick hjá Flensburg segir mikla eftirvæntingu ríkja fyrir helgina.

„Það er ekki bara verið að spila um titil,“ sagði Pytlick. „Það er líka verið að spila um sæti í Meistaradeildinni.“

Timo Kastening hjá MT Melsungen sagði að leikmenn félagsins væru mjög spenntir fyrir verkefninu.

„Allir eru tilbúnir fyrir þessa helgi. Það er verið að spila um Evróputitil og auk þess um sæti í Meistaradeildinni. Það er næg hvatning.“

Melsungen er enn í leit að fyrsta stóra titli í sögu félagsins, á meðan Flensburg getur orðið fyrsta liðið til að vinna Evrópudeildina þrjú ár í röð. Kiel reynir hins vegar að forðast annað titlalaust tímabil í röð.

Í fyrri undanúrslitaleiknum mætir Kiel franska liðinu Montpellier HB. Í hinum leiknum eigast við Flensburg og Melsungen. Athygli vekur að nákvæmlega sömu undanúrslit voru spiluð á sama stað í fyrra. Þá fóru Flensburg og Montpellier áfram í úrslitaleikinn.

Marko Grgic hjá Flensburg sagði þó að úrslitin frá síðasta ári skiptu engu máli.

„Það þýðir ekkert. Þetta byrjar allt í stöðunni 0:0.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top