Emil Nielsen kvaddi Barcelona með Meistaradeildargulli
Ronny HARTMANN / AFP

Danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen átti stórleik þegar Barcelona lagði Füchse Berlin 37–34 í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Köln í dag.

Með sigrinum tryggði Barcelona sér enn einn Evrópumeistaratitilinn og Nielsen kvaddi félagið með gullverðlaun um hálsinn áður en hann flytur til ungverska stórliðsins Veszprém í sumar.

Emil Nielsen var með 34,15% markvörslu í leiknum og reyndist sérstaklega erfiður fyrir þýska liðið í upphafi leiks.

„Þetta hefur verið ótrúleg helgi. Við höfum sýnt hversu sterkir við erum og það sem liðið hefur afrekað á þessu tímabili er virkilega gott,“ sagði Nielsen eftir leikinn.

Barcelona þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum bæði í undanúrslitum gegn Álaborg og í úrslitaleiknum gegn Füchse Berlin. Nielsen sagði að liðið hefði getað tapað báðum leikjum, en taldi þó að Barcelona hefði verið besta lið Evrópu yfir allt tímabilið.

Sigurinn markaði jafnframt tilfinningaríkan endapunkt á fjögurra ára veru hans hjá spænska stórveldinu.

„Þetta eru fjögur frábær ár sem hafa skipt mig miklu máli. Ég er afar stoltur og þakklátur fyrir að kveðja félagið með Meistaradeildargull um hálsinn,“ sagði markvörðurinn.

„Ég get ekki neitað því að þetta var tilfinningaþrungið. Þegar það rann upp fyrir mér hvað við höfðum afrekað þessa helgi komu tilfinningarnar fram,“ sagði hann.

Að hans sögn var gullið fullkomin lokapunktur á langt og krefjandi keppnistímabil.

„Þetta hefur verið langt og erfitt ár. Það er miklu skemmtilegra að fara í sumarfrí með gullverðlaun um hálsinn,“ sagði Nielsen.

Með sigrinum lauk kafla Nielsen hjá Barcelona. Á fjórum árum með félaginu vann hann Meistaradeildina tvisvar sinnum og tapaði tvisvar í úrslitum.

„Þetta hefur verið frábær tími. Við unnum tvisvar og töpuðum tvisvar í úrslitum. Ég lít á það sem vel heppnað verkefni. Margir af bestu leikmönnum heims hafa aldrei unnið Meistaradeildina, þannig að ég er bæði stoltur og þakklátur,“ sagði Emil Nielsen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top