Markmiðið er að fara áfram – Annað væri furðulegt
Kristinn Steinn Traustason

U20 ára kvenna landslið Íslands heldur til Kína annað kvöld þar sem liðið leikur á heimsmeistaramótinu sem framundan er.

Er þetta í annað sinn sem þessi árgangur tekur þátt í heimsmeistaramóti sem fram fer í Kína og er því stór hluti af hópnum að fara til Kína í annað sinn á ævinni.

Halldór Stefán Haraldsson er þjálfari liðsins en Sunna Jónsdóttir verður honum til aðstoðar ásamt Jovan Kukobat. Ísland hefur leik á miðvikudaginn í næstu viku en liðið er í riðli með Svartfjallalandi, Tékklandi og Bandaríkjunum. Handkastið mun fylgjast með gangi mála hjá stelpunum á meðan mótinu stendur.

,,Við erum í riðli með tveimur öðrum Evrópuþjóðum og það eru bara tveir riðlar af átta með þremur Evrópuþjóðum á mótinu. Svo það er klárt að þessi riðill er mjög erfiður. Mér skilst að þetta lið hafi ekki unnið sigur gegn Svartfjallalandi né Tékkum áður. En það er klárt að markmiðið er að fara áfram, annað væri furðulegt. Væntingarnir eru þær að við náum upp góðri spilamennsku," sagði Halldór Stefán í samtali við Handkastið en tvö efstu lið riðilsins fara áfram í mótinu.

Leikir Íslands á HM U20 kvenna:
Miðvikudagur:
03:45 Ísland - Svartfjallalands
Fimmtudagur:
06:00 Ísland - Tékkland
Laugardagur:
03:45 Ísland - Bandaríkin

,,Við höfum undirbúið varnarleikinn okkar í eitt ár og það yrði miög svekkjandi ef varnarleikurinn verður ekki góður á mótinu. Undirbúningurinn hefur gengið vel og stelpurnar hafa staðið sig mjög vel. Það eru margir flottir leikmenn í okkar liði og markmiðið er að rótera mikið og þannig ætlum við að halda uppi hröðum leik. Við höfum farið í gegnum tvær mismunandi varnir og erum með margar útfærslur á okkar sóknarleik."

Í kvöld leikur liðið sinn síðasta leik fyrir mótið en stelpurnar mæta 4.flokks karlaliði Aftureldingar. Halldór segir að það sé í raun loka undirbúningur liðsins fyrir heimsmeistaramótið.

,,Við tökum síðan loka æfingu liðsins á Íslandi á morgun áður en við höldum í langt ferðalag til Kína annað kvöld. Við erum meðvituð um að tímamismunurinn mun hafa áhrif á okkur til að byrja með," sagði Halldór Stefán og benti á að norska landsliðið fór af stað í gær á meðan íslenska landsliðið mætir á sinn leikstað í Kína á mánudagsmorgun, tveimur sólarhringum fyrir fyrsta leik.

Leikmannahópur Íslands:

Alexandra Ósk Viktorsdóttir - ÍBV

Birna María Unnarsdóttir - ÍBV

Ásdís Halla Hjarðar - ÍBV

Arna Karítas Eiríksdóttir - Valur

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir - Valur

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir - KA/Þór

Dagmar Guðrún Pálsdóttir - Fram

Elísabet Millý Elíasardóttir - HK

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir - Selfoss

Guðmunda Auður Guðjónsdóttir - Haukar

Guðrún Hekla Traustadóttir - Valur

Hulda Hrönn Bragadóttir - Selfoss

Inga Fanney Hauksdóttir - HK

Sara Lind Fróðadóttir - Valur

Sara Rún Gísladóttir - Fram

Sif Hallgrímsdóttir - ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top