Svissneski landsliðsmarkvörðurinn Nikola Portner hefur gengið til liðs við ungverska stórliðsins Pick Szeged. Hann kemur til félagsins frá þýska stórliðinu Magdeburg þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Portner skrifaði undir samning við Pick Szeged til ársins 2029 og er ætlað að fylla skarð Tobias Thulin sem hefur gengið í raðir Benfica í Portúgal. Portner, sem er 32 ára gamall, kemur til Szeged eftir viðburðaríkt tímabil innan sem utan vallar. Vorið 2024 greindist metamfetamín í sýni sem tekið var af markverðinum eftir leik með Magdeburg. Hann var umsvifalaust settur í tímabundið keppnisbann á meðan málið var rannsakað. Þýska handknattleiksdeildin felldi síðar niður tímabundna bannið og taldi að hið afar lága magn efnisins benti ekki til vísvitandi lyfjanotkunar eða frammistöðubætandi áhrifa. Málið var þó ekki þar með úr sögunni, því þýska lyfjaeftirlitið áfrýjaði niðurstöðunni. Að lokum náðist samkomulag milli Portners, WADA, NADA og þýsku handknattleiksdeildarinnar um 21 mánaðar keppnisbann sem gilti afturvirkt frá mars 2024. Jafnframt var tekið fram að engar vísbendingar hefðu fundist um að brotið hefði verið framið af ásetningi. Portner varð því gjaldgengur á ný í desember 2025. Þrátt fyrir erfiðleikana er Portner enn talinn einn fremsti markvörður Evrópu. Hann hefur unnið Meistaradeild Evrópu þrisvar sinnum, einu sinni með Montpellier og tvisvar með Magdeburg, auk þess að eiga í kringum 150 A-landsleiki fyrir Sviss.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.