Svíinn Valter Chrintz hefur kvatt þýska félagið Füchse Berlin eftir sex ára veru hjá félaginu. Tími hans í Berlín einkenndist af endurteknum meiðslum en hann sleit krossband í hné þrisvar sinnum á meðan hann var hjá félaginu. Chrintz gekk til liðs við Füchse Berlin árið 2020 og var þá talinn einn efnilegasti hægri hornamaður í heimi. Honum var ætlað að taka við hlutverki Mattias Zachrisson í hægra horninu og myndaði sterkt hornapar með Hans Lindberg. Í nóvember 2022 varð hann hinsvegar fyrir áfalli þegar hann sleit krossband og skaddaði jafnframt liðþófa í leik gegn GWD Minden í þýsku úrvalsdeildinni. Eftir langt endurhæfingarferli sneri hann aftur á völlinn og varð meðal annars Evrópumeistari með liðinu. Það sama ár varð hann Evrópumeistari með Svíum og þá var hann einnig hluti af sænska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á HM í Egyptalandi 2021. Óheppnin hélt þó áfram að elta Svíann. Eftir lánsdvöl hjá VfL Potsdam vorið 2024 sleit hann krossband á ný eftir aðeins fimm leiki. Á meðan hann vann að endurkomu sinni í Svíþjóð varð hann fyrir enn einu áfallinu þegar hann sleit krossband í þriðja sinn. Af þeim sökum lék hann ekki á tímabilinu 2024/25, þegar Füchse Berlin varð þýskur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Hinn 26 ára gamli Chrintz kvaddi félagið með tilfinningaríkri færslu á samfélagsmiðlum sínum á dögunum. „Ég kom hingað tvítugur með stóra drauma en kveð nú félagið sem maður. Þessi sex ár hafa mótað mig á þann hátt sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Þau hafa gefið mér ógleymanlegar minningar, stórkostlegan árangur, erfið áföll og dýrmæta reynslu sem ég mun bera með mér alla ævi,“ skrifaði Chrintz. Hann þakkaði jafnframt öllum sem tengjast félaginu fyrir stuðninginn, sérstaklega á erfiðustu tímabilunum. Ekki hefur enn verið tilkynnt hvar Chrintz mun leika á næsta tímabili en hann hefur bæði verið orðaður við félög í Danmörku og Svíþjóð en hann er uppalinn hjá IFK Kristianstad og lék þar áður en hann gekk í raðir Füchse Berlin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.