Dagur Sigurðsson, fyrrverandi þjálfari Füchse Berlin og núverandi þjálfari króatíska landsliðsins hefur áhyggjur af sínu gamla félagi eftir að liðið tapaði fyrir SC Magdeburg, 31-38, í þýska Ofurbikarnum um helgina. Dagur var sérfræðingur hjá Dyn á leiknum, segir leikmannahóp Füchse vera of þunnan og óttast að Nicolej Krickau, þjálfari liðsins, eigi erfitt verkefni fyrir höndum. Með Nils Lichtlein og Fabian Wiede frá vegna meiðsla þurftu Mathias Gidsel, Tobias Grøndahl og Matthes Langhoff að bera mikla ábyrgð í sóknarleik liðsins gegn Magdeburg. „Þetta hlýtur að valda magaverk, því þeir hafa enga möguleika á skiptingum í útilínunni. Þeir spiluðu með sömu þremur leikmönnunum og þá verður maður fyrirsjáanlegur og einhæfur,“ sagði Dagur við handball-world.com. Hann kallar jafnframt eftir skýrari leiðtoga innan liðsins. „Hver er hinn leiðtoginn? Hann sást ekki! Það hræðir mig fyrir hönd gamla félagsins míns.“ Dagur segir Füchse einnig hafa veikst verulega í markinu eftir að Dejan Milosavljev yfirgaf félagið. „Í markinu hafa þeir misst óttann. Það eru aðeins fáir markverðir í heiminum sem geta skapað slíkan ótta.“ Að hans mati hefur það bein áhrif á varnarleikinn. „Þetta smitast yfir í vörnina vegna þess að andstæðingarnir fá meira sjálfstraust og minni ótta.“ Lasse Andersson, sem yfirgaf einnig Füchse í sumar, skilur sömuleiðis eftir sig stórt skarð að mati Dags. Daninn var einn öflugasti vinstri skytta liðsins undanfarin ár. „Þessi markamaskína í vinstri skyttunni verður einfaldlega ekki leyst. Langhoff er góður leikmaður en þeir þurfa heimsklassa leikmann og það hafa þeir ekki eins og er,“ sagði Dagur sem telur greinilega ástæðu til að hafa áhyggjur af því hvernig Nicolej Krickau tekst að leysa vandamálin sem blasa við í höfuðborginni. Þýska úrvalsdeildin hefst á fimmtudaginn en Füchse Berlin fær þar MT Melsungen í heimsókn.Saknar ógnarinnar í markinu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.