Orri óstöðvandi og Óli Mittún fór á kostum
Mads Claus Rasmussen / AFP

Orri Freyr Þorkelsson og Óli Mittún fóru mikinn þegar sex leikir fóru fram í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sporting vann öruggan útisigur gegn Íslendingaliði Kristianstad en Óli Mittún skoraði tíu mörk þegar GOG lagði Pick Szeged.

2.umferðin í Meistaradeildinni lýkur á morgun með öðrum sex leikjum.

IFK Kristianstad–Sporting 29–37 (16–22)

Orri Freyr var markahæstur Sporting þegar portúgalska liðið vann öruggan 37–29 útisigur gegn IFK Kristianstad í Svíþjóð. Orri skoraði átta mörk úr átta skotum. Sporting náði tökum á leiknum undir lok fyrri hálfleiks og breytti jafnri stöðu í sex marka forskot fyrir hlé, 22–16.

Kristianstad minnkaði muninn í þrjú mörk, 25–22, í síðari hálfleik en Sporting svaraði með fimm mörkum í röð og gerði út um leikinn. Sporting hefur unnið báða leiki sína í riðlinum en Kristianstad er án stiga.

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Guðmundsson skoraði eitt.

GOG–Pick Szeged 36–34 (18–17)

Óli Mittún var í aðalhlutverki hjá GOG sem vann góðan 36–34 heimasigur gegn Pick Szeged. Óli skoraði tíu mörk úr ellefu skotum og var markahæstur ásamt Manuel Zehnder, sem gerði einnig tíu mörk.

GOG leiddi 18–17 í hálfleik og komst fjórum mörkum yfir, 22–18, snemma í síðari hálfleik. Szeged gafst ekki upp og jafnaði í 32–32 þegar fimm mínútur voru eftir, en danska liðið reyndist sterkara á lokakaflanum. Þetta voru fyrstu stig GOG eftir stórt tap gegn Sporting í fyrstu umferðinni.

Annað tap Pick Szeged í röð sem tapaði gegn Tatabanya í ungversku deildinni um helgina.

Füchse Berlin–Veszprém 29–35 (16–21)

Veszprém vann sterkan 35–29 útisigur gegn Füchse Berlin. Ungverska liðið náði sex marka forskoti strax á fyrstu 17 mínútunum og leiddi 21–16 í hálfleik. Füchse vann sig aftur inn í leikinn og fékk tækifæri til að jafna í 25–25 þegar tólf mínútur voru eftir, en Tobias Grøndahl brást bogalistin af vítalínunni.

Veszprém svaraði með 5–1 kafla og tryggði sér sigurinn. Hugo Descat skoraði níu mörk fyrir Veszprém en Mathias Gidsel gerði tíu fyrir Füchse.

Vardar–Nantes 32–33 (15–16)

Nantes vann dramatískan 33–32 útisigur gegn Vardar í Skopje. Þetta var annar eins marks sigur franska liðsins í jafnmörgum leikjum.

Vardar leiddi 29–27 þegar átta mínútur voru eftir en Nantes jafnaði metin í hvert sinn sem heimamenn komust yfir á lokakaflanum. Noam Leopold skoraði sigurmarkið úr vítakasti átta sekúndum fyrir leikslok áður en Christoffer Bonde varði síðasta skot Vardar. Leopold skoraði 13 mörk fyrir Nantes.

Paris Saint-Germain–Zagreb 34–30 (18–17)

Paris Saint-Germain vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Zagreb 34–30.

PSG komst í 11–6 en Zagreb vann sig inn í leikinn og komst yfir, 28–27, þegar átta mínútur voru eftir. Franska stórliðið svaraði með fjórum mörkum í röð og tryggði sér sigurinn á lokakaflanum. Yahia Omar var markahæstur PSG með tíu mörk úr ellefu skotum.

Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir PSG.

Kolstad–Industria Kielce 29–36 (14–20)

Industria Kielce vann sannfærandi 36–29 útisigur gegn Kolstad í Noregi. Pólska liðið hafði sex marka forskot í hálfleik, 20–14, og komst tíu mörkum yfir strax í upphafi síðari hálfleiks. Kielce hefur unnið báða leiki sína en Kolstad er enn án stiga.

Aleks Vlah skoraði níu mörk fyrir Kielce.

Úrslit kvöldsins:

Füchse Berlin–Veszprém 29–35
Vardar–Nantes 32–33
Paris Saint-Germain–Zagreb 34–30
GOG–Pick Szeged 36–34
IFK Kristianstad–Sporting 29–37
Kolstad–Industria Kielce 29–36

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top