Má setja spurningarmerki við að Jóhanna hafi ekki verið valin
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar mættu Valskonum á sunnudagskvöldið og fóru með 28-24 sigur af hólmi og ræddu strákarnir í Handkastinu þennan leik og þá helst frammistöðu Jóhönnu Margrétar Sigurðardóttur í síðasta þætti sínum.

Jóhanna skoraði 12 mörk í leiknum og var allt í öllu í liði Hauka í þessum sigri á Val.

Styrmi þótti það skrítið að hún hafi ekki verið valin í þennan landsliðshóp sem er að koma saman í vikunni og hafði hann á orði að hann ætlaði að fylgjast sérstaklega vel með frammistöðu hennar í umferðum 2 og 3 eftir að landsliðshópurinn var tilkynntur.

,,Hún er er í hefndarhug og ætlar sér að sýna landsliðsþjálfaranum að hann hafi valið rangt í þetta skiptið. Þetta minnir óneitanlega á Söru Dögg, leikmanns ÍR, í fyrra þegar hún var að eiga frábært tímabil en var ekki í 35 manna hóp landsliðsins fyrir HM."

Hann tók þó fram að menn sem töluvert meiri reynslu af þjálfun í handbolta hefðu þó bent honum á að mögulega mætti útskýra þetta val með því að Jóhanna Margrét passaði ekki inn í þær áherslur sem landsliðsþjálfarinn væri að fókusa á.

,,Ég ætla ekki að fara að segja landsliðsþjálfaranum hvernig hann á að vinna vinnuna sína en maður fá hins vegar alveg setja spurningarmerki við þetta."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top