Það styttist í að Hannes Höskuldsson, vinstri hornamaður Selfoss, snúi aftur á handboltavöllinn eftir að hafa verið frá keppni vegna meiðsla. Hannes stefnir á endurkomu í næstu tveimur til þremur umferðum. Hannes gekkst undir aðgerð um miðjan júní og hefur því ekki getað tekið þátt í leikjum Selfoss það sem af er tímabilinu. Fyrir tímabilið ræddi Hannes við Handkastið um stöðuna og sagðist þá vonast til að geta snúið aftur einhvern tímann í október. Sú áætlun virðist ætla að ganga eftir. „Endurhæfingin hefur gengið mjög vel. Ég er vonandi að byrja að æfa full contact í þessari viku og þá er bara spurning hvernig líkaminn bregst við álaginu og hvenær fyrsti leikurinn verður,“ sagði Hannes í samtali við Handkastið. „Ég er að binda vonir við að vera mættur á völlinn í næstu tveimur til þremur umferðum.“ Endurkoma Hannesar yrði mikill liðsstyrkur fyrir Selfyssinga. Hann var langmarkahæsti leikmaður liðsins í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði 154 mörk. Hannes er uppalinn á Selfossi og hefur um árabil verið einn öflugasti vinstri hornamaður deildarinnar. Selfoss er enn í leit af sínum fyrsta sigri á tímabilinu en liðið fær Íslands- og deildarmeistara Vals í heimsókn í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins í kvöld klukkan 19:15.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.