Benedikt Gunnar Óskarsson nálgast nú óðum það að leika sinn fyrsta keppnisleik fyrir danska úrvalsdeildarliðið TTH Holstebro eftir langa fjarveru. Benedikt gekk til liðs við Holstebro í sumar en hefur ekki getað leikið með liðinu vegna meiðsla sem hann varð fyrir í sumar. Holstebro birti í dag uppfærslu á meiðslastöðu leikmanna liðsins og þar voru góðar fréttir af íslenska leikstjórnandanum. Benedikt hefur samkvæmt heimasíðu félagsins aukið þátttöku sína á æfingum og æfir nú sífellt meira með liðsfélögum sínum. Að sögn Holstebro gengur endurhæfingin mjög vel og þróunin eftir óhappið í sumar hefur verið í rétta átt. Félagið gerir því ráð fyrir að ekki sé langt í að Benedikt geti loksins klæðst treyju Holstebro í keppnisleik. Benedikt hefur verið undir nánu eftirliti heilbrigðisteymis Holstebro í gegnum allt ferlið, auk lækna á Regionshospitalet Gødstrup og læknis félagsins. Benedikt gekk í raðir Holstebro frá Kolstad í Noregi í sumar en meiðslin hafa komið í veg fyrir að hann geti leikið með nýja liðinu til þessa.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.