Tveir leikmenn Vals í landsliðshópi Færeyja
Jón Gautur Fótó

Tveir leikmenn Vals, þeir Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg, eru í 16 manna landsliðshópi Færeyja sem hefur verið valinn fyrir fyrstu tvo leikina í undankeppni Evrópumótsins.

Landsliðsþjálfararnir Peter Bredsdorff-Larsen og Hjalti Mohr Jacobsen tilkynntu hópinn en Færeyingar hefja undankeppnina með heimaleik gegn Kósóvó 4. nóvember áður en liðið sækir Svartfjallaland heim fjórum dögum síðar, 8. nóvember.

Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg hafa báðir leikið með Val síðustu ár og hafa verið hluti af liði félagsins í Olís-deild karla á yfirstandandi tímabili og í Evrópudeildinni.

Í hópnum er að finna nokkra leikmenn sem leika með sterkum félagsliðum í Evrópu. Þar á meðal eru Elias Ellefsen á Skipagøtu, leikmaður THW Kiel, Óli Mittún hjá GOG, Vilhelm Poulsen hjá Hannover-Burgdorf og Hákun West av Teigum hjá Füchse Berlin.

Landsliðshópur Færeyja:

Markverðir:

  • Pauli Jacobsen – IFK Skövde
  • Aleksandar Lacok – TSV St. Otmar St. Gallen

Útileikmenn:

  • Tróndur Mikkelsen – HF Karlskrona
  • Rói Ellefsen á Skipagøtu – Århus Håndbold
  • Óli Mittún – GOG
  • Pauli Mittún – HC København
  • Vilhelm Poulsen – Hannover-Burgdorf
  • Elias Ellefsen á Skipagøtu – THW Kiel
  • Bjarni í Selvindi – Valur
  • Teis Horn Rasmussen – TTH Holstebro
  • Ísak Vedelsbøl – HØJ
  • Helgi Hildarson Hoydal – H71
  • Pauli Høj – Bergsøy
  • Leivur Mortensen – HF Karlskrona
  • Hákun West av Teigum – Füchse Berlin
  • Allan Norðberg – Valur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top