Einar Þorsteinn tæpur fyrir Úkraínuleikinn
Sævar Jónasson

Einar Þorsteinn Ólafsson, leikmaður Hamburg og íslenska landsliðsins, er tæpur fyrir leik Íslands gegn Úkraínu í undankeppni EM á miðvikudaginn. Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, staðfesti það í samtali við Handkastið.

Íslenska liðið kom saman til æfinga í Safamýri í dag og verður staðan á Einari Þorsteini metin að æfingunni lokinni.

„Það verður að koma í ljós. Einar Þorsteinn varð fyrir hnjaski í síðasta leik og hann er að taka stöðuna á æfingunni í dag. Enn sem komið er er ég ekki búinn að gera neinar breytingar,“ sagði Snorri Steinn.

Áður hefur verið greint frá því að Ýmir Örn Gíslason, leikmaður Göppingen, verði ekki með í leikjum vikunnar vegna meiðsla. Þá leikur Elliði Snær Viðarsson gegn Úkraínu en verður fjarverandi af persónulegum ástæðum þegar Ísland mætir Eistlandi á sunnudaginn.

Ýmir Örn ekki með gegn Úkraínu og Eistlandi

Snorri segir stöðuna þó ekki hafa kallað á breytingar á fyrirkomulaginu hjá Elliða.

„Enn sem komið er hefur það ekki áhrif á það. Elliði spilar á miðvikudaginn og aðrir taka svo við á sunnudaginn í Eistlandi.“

Ísland tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll á miðvikudaginn klukkan 19:30 áður en liðið mætir Eistlandi á útivelli á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top