FH vann Val í hörkuleik þar sem þrír fengu rautt
J.L.Long

FH vann mikilvægan 35-31 sigur á Val í Olís-deild karla í Kaplakrika í kvöld. Valur var í öðru sæti deildarinnar fyrir leikinn og FH í því þriðja. Leikurinn var jafn framan af en FH-ingar náðu yfirhöndinni í síðari hálfleik og tryggðu sér sigur í hörkuleik þar sem þrír leikmenn fengu rauð spjöld.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og skiptust þau á að hafa forystuna. FH komst í 9-8 en Valur svaraði og komst í 11-10. Heimamenn jöfnuðu í 11-11 en Valsmenn náðu síðan þriggja marka forskoti, 16-13, undir lok fyrri hálfleiks. FH minnkaði muninn og Valur leiddi 18-17 í hálfleik.

FH byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og komst í 20-18. Heimamenn náðu síðan fjögurra marka forskoti, 24-20, og juku muninn í sex mörk, 28-22, þegar rúmar 43 mínútur voru liðnar.

Valsmenn náðu að minnka muninn í eitt mark, 30-29, þegar tæpar tólf mínútur voru eftir. FH-ingar héldu hins vegar út og tryggðu sér að lokum fjögurra marka sigur, 35-31.

Mikil harka var í leiknum og þrír leikmenn fengu rauð spjöld. FH missti tvo leikmenn af velli vegna þriggja tveggja mínútna brottvísana. Þá fékk Bjarni í Selvindi, leikmaður Vals, beint rautt spjald undir lok leiksins fyrir brot á Ágústi Guðmundssyni.

Markvarðaeinvígið vakti sérstaka athygli. Landsliðsmarkverðirnir Jón Þórarinn Þorsteinsson og Björgvin Páll Gústavsson mættust í Kaplakrika en Jón Þórarinn hafði betur í einvígi þeirra.

Jón Þórarinn var valinn í landsliðshóp Íslands en sat uppi í stúku í síðustu landsleikjum á meðan Björgvin Páll var í leikmannahópnum. Í kvöld var það hins vegar Jón Þórarinn sem átti mun betri leik og varði 17 skot fyrir FH á meðan Björgvin Páll varði tíu skot fyrir Val.

Eiður Rafn Valsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru markahæstir FH með sjö mörk hvor og Símon Michael Guðjónsson skoraði sex.

Hjá Val var Gunnar Róbertsson markahæstur með átta mörk, Andri Finnsson skoraði sjö og Allan Norberg, Arnór Snær Óskarsson og Bjarni í Selvindi fjögur hver.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top