Haukar unnu níu marka sigur á Þór, 35–26, í Olís-deild karla í kvöld. Skarphéðinn Ívar Einarsson fór fyrir markaskorun Hauka með tólf mörk en heimamenn leiddu 17–14 í hálfleik. Sigurganga Hauka í Olís-deild karla ætlar engan endi að taka en liðið er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Þórsarar skoruðu fyrsta mark leiksins og jafnt var á öllum tölum upp í 4–4. Þá tóku Haukar við sér, skoruðu fjögur mörk í röð og komust í 8–4. Gestirnir héldu þó í við heimamenn og minnkuðu muninn í eitt mark, 13–12 og aftur í 15–14. Haukar skoruðu síðustu tvö mörk fyrri hálfleiks og fóru með þriggja marka forskot til búningsherbergja. Eftir að Þór minnkaði muninn í 17–15 í upphafi síðari hálfleiks svöruðu Haukar með þremur mörkum í röð og komust í 20–15. Munurinn var lengst af fjögur til fimm mörk framan af hálfleiknum en heimamenn náðu smám saman betri tökum á leiknum og komust í 31–24 þegar tæpar átta mínútur voru eftir. Þórsarar minnkuðu muninn í 31–26 en skoruðu ekki síðustu rúmar sex mínútur leiksins. Haukar gerðu hins vegar fjögur síðustu mörkin og tryggðu sér öruggan níu marka sigur. Skarphéðinn var markahæstur hjá Haukum með tólf mörk og Andri Fannar Elísson skoraði átta. Saman gerðu þeir því 20 af 35 mörkum liðsins. Freyr Arnarsson bætti við fimm mörkum. Aron Rafn Eðvarðsson varði 15 skot og Grétar Ari Guðjónsson fjögur. William Skovager var markahæstur hjá Þór með sjö mörk, Hafþór Már Vignisson skoraði sex og Bertram Simonsenfjögur. Nikola Radovanovic varði 15 skot í marki gestanna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.