Afturelding vann öruggan sigur á ÍBV, 34–27, í Olís-deild karla í kvöld. Mosfellingar leiddu 19–13 í hálfleik og náðu mest tíu marka forskoti í síðari hálfleik. Jafnræði var með liðunum framan af og Eyjamenn höfðu ítrekað eins marks forystu á upphafsmínútunum. Afturelding komst hins vegar í 8–5 en gestirnir svöruðu og jöfnuðu í 9–9. Eftir stöðuna 12–11 náðu heimamenn góðum kafla. Þeir skoruðu sex af næstu sjö mörkum og komust í 18–12 áður en liðin gengu til búningsherbergja með sex marka mun, 19–13. ÍBV skoraði fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks og minnkaði muninn í 19–15. Mosfellingar héldu þó gestunum í hæfilegri fjarlægð og juku forskotið jafnt og þétt. Staðan var orðin 30–20 þegar rúmar tíu mínútur voru eftir og úrslitin þá vart í hættu. Eyjamenn minnkuðu muninn undir lokin en sjö marka sigur Aftureldingar var öruggur. Ævar Smári Gunnarsson og Árni Bragi Eyjólfsson voru markahæstir hjá Aftureldingu með sex mörk hvor. Leó Halldórsson skoraði fimm mörk en Hans Jörgen Ólafsson og Oscar Sven Leithoff Lykke fjögur hvor. Einar Baldvin Baldvinsson varði 12 skot og Sigurjón Bragi Atlason eitt. Hjá ÍBV skoraði Dagur Arnarsson tíu mörk og Atli Steinn Arnarson sjö. Þeir skoruðu því saman 17 af 27 mörkum gestanna. Petar Jokanovic varði sjö skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.