Danski markvörðurinn Mike Jensen yfirgefur þýska úrvalsdeildarfélagið Rhein-Neckar Löwen eftir yfirstandandi tímabil þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Ástæðan er óánægja markvarðarins með lítinn spilatíma. Rhein-Neckar Löwen staðfesti í gær að félagið og Jensen hefðu komist að samkomulagi um að ljúka samstarfinu sumarið 2027, ári áður en samningur hans rennur út. Jensen er 31 árs gamall og gekk til liðs við félagið frá ungverska stórliðinu Veszprém sumarið 2025. Daninn hefur þurft að sætta sig við að vera varamarkvörður á eftir þýska landsliðsmarkverðinum David Späth og hefur því fengið takmörkuð tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Haukur Þrastarson er leikmaður liðsins og Elvar Örn Jónsson gengur í raðir félagsins næsta sumar. „Þótt mér líði vel hjá félaginu er það mín ósk að fá meiri spilatíma. Ég er ánægður með að við höfum fundið sameiginlega lausn þótt það þýði að leiðir okkar skilji,“ sagði Jensen í tilkynningu Rhein-Neckar Löwen. Uwe Gensheimer, íþróttastjóri félagsins segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir opinskáar viðræður við markvörðinn. „Ég met Mike mikils, bæði sem persónu og leikmann. Við höfum alltaf átt heiðarlegar og opnar viðræður og erum sammála um að markvörður í hans gæðaflokki eigi skilið meiri spilatíma,“ sagði Gensheimer sem hrósaði Jensen jafnframt fyrir fagmennsku og hvernig hann hefði ávallt sett hagsmuni liðsins í fyrsta sæti þrátt fyrir takmarkaðan spilatíma. Jensen mun klára tímabilið með Rhein-Neckar Löwen en ekki hefur verið tilkynnt hvar hann hyggst leika á næstu leiktíð. Félagið situr í 13. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og hefur ekki gengið sem skyldi það sem af er tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.